Oft á tíðum eru ákveðin viðvörunarmerki til staðar þegar um er að ræða arfgenga sjúkdóma.
Í sambandi við krabbamein myndi markverð saga innihalda:
- Ættingja sem fengu krabbamein fyrr en gengur og gerist
- Ættingja sem hafa krabbamein sem geta verið hluti af krabbameinsheilkenni, t.d. brjósta- og eggjastokkamein – eða ristil- og legslímumein
- Fleiri en eitt frumæxli hjá sama einstaklingi
- Óvanaleg mein, eins og brjóstakrabbamein hjá karli